Hafa samband

Sendu okkur línu Netfang: simamenn@simamenn.is
Sími: 580-5200
Fax: 580-5220
Ferð Heldri félaga 2017
Sunnudagur, 04. júní 2017

Árleg ferð Heldri félaga verður miðvikudaginn 28. júní. Lagt verður af stað frá Stórhöfða 31 kl 13:00. Áætlunarstaður er Borgarnes þar sem farið verður á leiksýninguna Svarti Galdur. Hún er ofin saman úr þekktum þjóðsögum sem lifað hafa með þjóðinni í gegnum aldirnar. Að heimsókn lokinni verður boðið upp á kaffi og veitingar á Hótel Borgarnesi. Makar að sjálfsögðu velkomnir en mikilvægt að skrá mætingu hans samhliða skráningu félagsmanns. Einnig er nauðsynlegt að skrá gsm símanúmer.  Skráning hefst 12. júní og lýkur á hádegi 23. júní. Þessar ferðir hafa verið vel sóttar síðustu ár og því mikilvægt að skrá sig tímanlega til að komast að, en hámarksfjöldi í ferðina er 160 manns.  Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða með því að hringja í 580-5201 eða 580-5235.