Í þessum flokki er fjallað um orlofsmál og ýmiss réttindi tengd orlofsmálum.
Í þessum flokki er fjallað um ýmsa styrki og réttindi tengd styrkveitingum.
Í þessum flokki er hugmyndin að svara ýmsum spurningum sem kunna að brenna á félagsmönnum varðandi félagið, túlkun kjarasamninga, réttindi og önnur atriði sem félagsmenn hafa spurningar um.
Vantar þig upplýsingar um réttindi þín eða ávinning sem þú telur þig hafa sem félagsmaður? Sendu okkur spurningar á netfangið okkar simamenn@simamenn.is og við reynum að svara sem fyrst.
Textahólf sem hefur ekki verið tekið í notkun en er ætlað fyrir upplýsingar er varða málefni félagsins.
Textahólf sem hefur ekki verið tekið í notkun en er ætlað fyrir upplýsingar er varða málefni félagsins.
Ég er félagsmaður hjá RSÍ og var að velta því fyrir mér hvernig það er háttað með orlofshúsin hjá ykkur...ég hef 147 punkta uppsafnaða hjá félaginu og gilda þeir sem greiðsla fyrir orlofshúsin eða bara sem niðurgreiðsla að hluta?
Allir félagsmenn fá húsin leigð á sama verði. Allir félagsmenn fá sömu niðurgreiðslu sem er liðlega 20 þús kr á viku. Punktar gilda í sumarúthlutun og við páskaúthlutun. Þ.e.a.s. segja ef margir sækja um sömu vikuna þá fær sá sem er með flesta punktana
Eru félagið með hús þar sem gæludýr (hundar) eru leyfðir sem gestir?
Því miður þarf að svra þessari spurningu neitandi þar sem bannað er að vera með gæludýr í orlofshúsunum. Þetta er erfitt en það er nú samt þannig að það eru nokkuð algegnt að fólk hafi ofnæmi fyrir hárum gæludýra.
Mig langar að vita hvort félagið sé með gleraugnastyrk?
Félagið er með gleraugnastyrki. Þá viljum við benda þér á starfsreglur Styrktarsjóðs RSÍ, hér á síðunni undir "Sjúkrasjóður" og svo "Starfsreglur"
Ég er félagi hjá ykkur og var að velta einu fyrir mér. Hóf störf aftur í ágúst sl. eftir barneignafrí og síðan þá hef ég þurft að vera töluvert frá vinnu vegna veikinda sonar míns, er komin upp í tæpa 20 vinnudaga. Er hægt að sækja um styrk úr sjúkrasjóðnum ykkar til að bæta upp launatap? Sv: Já þú getur átt rétt á styrk í gegnum sjúkrasjóð RSÍ
Já þú getur átt rétt á styrk í gegnum sjúkrasjóð RSÍ
Ég fékk flensu og vírus í hjartað og varð frá vinnu af þeim sökum. Nú hef ég sjálfur þurft að greiða nokkurn kostnað vegna þessa. Þám, læknakostnað, sjúkrabíl og lyfjakostnað. Mín fyrirspurn er hvort félagið taki einhvern þátt í þessum kostnaði ?
Já það er gert , þú þarft að senda frumrit af reikningum upp á RSÍ
Ég fékk uppsagnarbréf frá fyrirtækinu sem ég hef unnið hjá. Ég á 3ja mán. uppsagnarfrest. Okkur samdist svo vegna verkefnastöðu að ég hætti strax, en væri áfram á launum út uppsagnarfrestinn. Ég fékk svo vinnu hjá öðrum þegar 1 mán. var liðinn. Nú vil fyrirtækið sem ég vann ekki borga mér laun það sem upp á vantar af uppsagnarfrestinum. Á ég ekki rétt á því?
Nei því miður. Ef þú færð aðra vinnu glatar þú rétti til launa í uppsögn. Það hafa fallið fjölmargir dómar um þetta
Eru ráðningar gerðar munnlegar eða skriflegar ?
Ráðningu skal ávallt staðfesta með skriflegum hætti. Það er á ábyrgð vinnuveitanda þíns að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við. Þetta er ekki síst mikilvægt til að staðfesta þau kjör sem um er samið, t.d. vinnutíma, starfssvið og launakjör.
Í upphafi gera flesir munnlegt samkomulag um þau atriði sem máli skipta. Það er mjög gott að staðfesta með skriflegum hætti allt það sem áhrif kann að hafa á sambandið, þar með talið breytingar á starfskjörum og aðrar tilkynningar
Á ég uppsagnarfrest?
Já, uppsagnarfrestur er ávallt í hlutfalli við það hversu lengi þú hefur starfað hjá vinnuveitanda. Á fyrstu 3 mánuðum í starfi er uppsagnarfrestur 1 vika, á næstu 3 mánuðum er uppsagnarfrestur 1 mánuður, bundinn við mánaðamót, og eftir 6 mánaða starf er uppsagnarfrestur orðinn 3 mánuðir, bundinn við mánaðamót.
Uppsagnarfrestur er gagnkvæmur. Það þýðir að bæði þú sem launþegi og þinn vinnuveitandi, verðið að virða þennan frest nema þið náið samkomulagi um annað.