Aðildarfélag að Rafiðnaðarsambandi Íslands

Stofnað 27. febrúar 1915

Sími 580 5200

Félag Íslenzkra Símamanna

Heimasíða

Mikilvægi þess að skilja réttindi sín og vera vel heima í kjaramálum félagsins.

Kjaramál eru einn viðamesti þátturinn í starfsemi stéttarfélags ásamt því að vera það málefni sem skiptir launafólk hvað mestu máli. Þess vegna er mikilvægt fyrir félagsmenn að hafa greiðan aðgang að öllum upplýsingum um kjaramál og réttindi og vera vel heima í hvoru tveggja.

Sem dæmi má nefna þegar veikindi eða slys ber að höndum. Þá er gott að geta leitað til stéttafélagsins og notið þeirra réttinda og verndar sem félagið veitir í krafti félagslegrar samstöðu og kjarasamnings.

Vakni upp spurningar um eitthvað tengt réttindum þínum á vinnumarkaði eða ef þig vantar upplýsingar um menntunarstyrki, lífeyrismál,sjúkrasjóð, orlofsmál eða hvað annað sem þú vilt skoða þá skaltu ekki hika við að hafa samband.

Ef þú ert ekki félagi hafðu þá samband við okkur og fáðu upplýsingar um inngöngu og þau réttindi sem aðild að stéttarféalagi veitir þér.

Með því að vera félagsmaður átt þú rétt á þjónustu frá félaginu þínu. Það getur t.d verið:

• túlkun kjarasamninga en starfsmenn RSÍ og FÍS sjá um að túlka vafaatriði sem koma upp á vinnustöðum varðandi réttindi starfsmanna. Þó bendum við alltaf á að hafa fyrst samband við trúnaðarmann starfsfólks. Verkefni trúnaðarmannsins er að aðstoða og leiðbeina fólki með réttindamál. Ef enginn trúnaðarmaður er kjörinn þá er hægt að snúa sér beint að starfsfólki skrifstofunnar sem að þá gengur í málið.

• að fá aðstoð við að yfirfara launaseðla og útskýra sundurliðuanir þeirra

• réttindi úr sjúkrasjóði í veikindatilfellum, en ef að þú ert greiðandi í félagið átt þú rétt á sjúkradagpeningum, endurgreiðslu vegna sjúkraþjálfunar og krabbameinsskoðunar ofl.

• réttur til greiðslu úr menntasjóði á hverju ári. Námskeiðsstyrkur er núna 35 þús á ári

• úthlutun orlofshúsa en félagið á og rekur fjölda húsa sjá nánar á rafis.is

• íbúðir í Reykjavík á vægu verði en félagið á og rekur 6 íbúðir

• félagið sér um fræðslu fyrir trúnaðarmenn og aðra sem sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið.

• félagið er með samstarfssamning við Stafir lífeyrissjóð, um aðstoð við félagsmenn varðandi útfyllingu ýmissa umsókna svo sem ellilífeyri, makalífeyri og örorkulífeyri ofl.

Ennfremur ert þú kjörgengur til starfa fyrir félagið þitt og getur þar með haft áhrif á stöðu mála. Aðalfundur er haldinn á hverju ári.

Kjarasamningur FÍS

Kjarasamningur okkar við Símann hf. rennur út 30. nóvember n.k. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast gildandi kjarasamning á PDF formi og einnig sem Word skjal.

Kjarasamningur á PDF formati

Kjarasamningur á Word formati

Samningar

Textahólf sem hefur ekki verið tekið í notkun en er ætlað fyrir upplýsingar er varða málefni félagsins.

Réttindi og aðstoð

Lögfræðiaðstoð

Halldór Oddsson lauk meistaraprófi frá lagadeild Háskóla Íslands vorið 2009. Hann starfaði samhliða námi m.a. hjá Héraðsdómi Norðurlands Eystra og Neytendasamtökunum, ásamt því að sinna aðstoðarkennslu við háskólann á seinni stigum námsins.

Halldór hefur aðsetur í húsnæði RSÍ að Stórhöfða 27, 1. hæð.

Opnir skrifstofutímar fyrir félagsmenn eru sem hér segir:

- Mánudagar, kl. 10:00 – 12:00
- Fimmtudagar, kl. 16:00 – 18:00

Jafnframt er hægt að hafa samband hvenær sem er á póstfangið halldor@rafis.is eða í síma 580-5287.
Viðtalstímar eru þá eftir nánara samkomulagi.

Ráðgjafi í Starfsendurhæfingu

Rafiðnaðarsambandið hefur í samstarfi við Virk, starfsendurhæfingarsjóð, ráðið til starfa Sigrúnu Sigurðardóttir ráðgjafa í starfsendurhæfingu. Sigrún er með skrifstofu að Stórhöfða 27.

Vinnutími er þriðjudaga, föstudaga og annan hvern miðvikudag. Hlutverk ráðgjafa er að bjóða félagsmönnum upp á þjónustu ef starfshæfni þeirra er skert eða henni er ógnað vegna veikinda eða heilsubrests.

Rauði þráðurinn er að efla virkni einstaklingsins, auka vinnugetu og varðveita vinnusamband hans til að koma í veg fyrir að hann detti út af vinnumarkaðnum. Þegar einstaklingur sækir um í sjúkrasjóð er honum boðið að koma í viðtal til ráðgjafa. Ráðgjafarferlið fer síðan eftir þörfum og væntingum hvers og eins. En markmiðið er að efla færni og vinnugetu til að draga úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku. Lykilatriði í því sambandi er aukin virkni einstaklingsins, efling endurhæfingar og annarra úrræða.

Ráðgjafinn er sérhæfður í að aðstoða einstaklinga við að efla færni sína og vinnugetu og hefur til þess aðgang að fjölbreyttum hópi sérfræðinga og fjölbreyttri þjónustu. Um getur verið að ræða aðgang að ýmsum úrræðum og stuðnings aðilum sem geta veitt einstaklingnum viðeigandi meðferð sem miðar að því að efla vinnu getu og varðveita vinnusamband hans.

Ráðgjafarferlið tekur mið af aðstæðum hvers og eins, en hér eru nokkur dæmi um þá þjónustu sem ráðgjafinn veitir:

  • Ráðgjöf og hvatning sem tekur mið af aðstæðum hvers og eins
  • Mat á starfshæfni sem tekur mið af bæði heilsufarslegum og félagslegum þáttum
  • Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstaklings bundinnar áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og endurhæfingu
  • Aðstoð og leiðbeiningar til að tryggja að viðkomandi einstaklingur fái það sem honum ber innan kerfisins
  • Aðstoð frá sérfræðingum eftir mat á stöðu einstaklings hverju sinni. Hér getur t.d. verið um að ræða aðstoð lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
  • Aðstoð í formi stuðnings til náms sem hefur það að markmiði að auka vinnugetu
  • Aðstoð í formi skipulagðrar starfs endurhæfingar þar sem einstaklingur inn, atvinnurekandinn og mismunandi fagaðilar vinna saman við að finna leiðir til aukinnar vinnugetu

Virkni einstaklingsins sjálfs er lykilatriði í þessu sambandi, að hann sé sjálfur virkur í að auka vinnufærni sína og viðhalda vinnusambandinu. Ráðgjafinn er síðan sá aðili sem hvetur einstaklinginn til virkni og veitir stuðning og upplýsingar. Veikindaréttur fólks er mismunandi langur og því getur fólk hafa verið frá vinnu vegna veikinda í langan tíma áður en það fær aðstoð frá sjúkrasjóði. Það er því mikilvægt að hafa í huga að þegar félagsmaður á orðið erfitt með að sinna starfi sínu vegna heilsubrests þá getur hann sett sig í samband við ráðgjafa. Skilyrði fyrir aðstoð er ekki að viðkomandi njóti aðstoðar sjúkrasjóðs.

Félagsmenn geta óskað eftir viðtali við ráðgjafa þótt þeir njóti enn launagreiðslna frá atvinnurekanda eða eru jafnvel ennþá í vinnu en farnir að finna fyrir skertri starfsgetu. Að sama skapi geta atvinnurekendur leitað til ráðgjafa ef þeir hafa áhyggjur af því að starfsmaður þeirra sé farinn að finna fyrir skertri starfsgetu. Þess ber að geta að samstarf er lykilþáttur í vinnu af þessu tagi þar sem aðkoma allra sem að máli koma skiptir máli.

Sjá nánar um Starfsendurhæfingu á vef VIRK.is

Styrkir fyrir félaga Fís í gegnum Rafiðnaðarsambandið

Styrkir vegna forvarnar og líkamsræktar

Líkamsræktarstyrkur

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.

  • Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna þjálfunar í líkamsræktarstöðvum, sundstöðum, dansskólum (námskeið) og íþróttafélögum vegna íþrótta. Að því tilskyldu að það sé til 3ja mánaðar eða lengur. Greiðslan nemur allt að helmingi framlagðs kostnaðar en þó aldrei hærra en kr. 20.000 á hverju almanaksári.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Útfyllt umsóknareyðublað og löggilt frumrit af kvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda ásamt upphæðinni sem greidd var.

Sjúkranudd, Sjúkraþjálfun og meðferð hjá kírópraktor

Sjúkraþjálfun/sjúkranudd

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði. Greitt er fyrir allt að 25 skipti árlega. Niðurgreiðsla er 1.380 kr pr skipti sé greitt 1.700 kr. eða meira fyrir tímann.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Útfyllt umsóknareyðublað, ljósrit af beiðni frá lækni. Löggilt frumrit af dagsettri kvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala beggja aðila, tímabil meðferðar, fjöldi skipta og upphæðin sem greidd var.

Gleraugnastyrkur

Skilyrði:Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.

  • Heimilt er að styrkja sjóðfélaga við kaup á gleraugum einu sinni á fjögurra ára fresti. Styrkurinn er að hámarki kr. 40.000 greiðslan nemur allt að helmingi framlags kostnaðar en þó aldrei hærri styrkur en kr. 40.000.- Gleraugnastyrkur skerðir ekki rétt til líkamsræktarstyrks. Reikniregla þessi tekur gildi 1.jan.2008.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Útfyllt umsóknareyðublað og ljósrit af sjónmælingu frá augnlækni eða sjóntækjafræðingi og löggilt frumrit af kvittunar fyrir gleraugum.

Ferðakostnaður

Ferðastyrkur

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.

  • Til að jafna aðstöðu þeirra sem búa á landsbyggðinni tekur sjúkrasjóður þátt í ferðakostnaði þeirra sem þurfa að fara landshluta á milli til aðgerða eða rannsókna að læknisráði. Sækja verður um styrk til TR. Hafni TR greiðslu er greitt fyrir 40 til 100 km kr. 3000, 100 til 250 km. kr. 6000, 250 til 400 km. kr. 10.500 og 400 km og lengra kr. 15.000. Hámark er greitt fyrir 25 ferðir á ári.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Útfyllt umsóknareyðublað og löggilt frumrit af kvittun frá meðferðaraðila. Afrit af höfnunarbréfi TR.

Kostnaðarsamar læknisaðgerðir

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.

  • Styrktarsjóði er heimilt að taka þátt í kostnaði félagsmanna vegna kostnaðarsamra læknisaðgerða. Styrkur er metin hverju sinni en er þó ekki hærri en 40% af útlögðum kostnaði, hafi kostnaður verið hærri en kr. 85.300. þó aldrei hærri styrk en kr. 80.000, auk þátttöku í ferðakostnaði sé um það að ræða. Styrk samkvæmt þessari reglu er að jafnaði ekki hægt að veita sama félagsmanni nema einu sinni á þriggja ára tímabili. Undir kostnaðarsamar læknisaðgerðir teljast t.d.glasa-eða tæknifrjóvgun, laser aðgerð á augum eða dvöl á heilsustofnun í Hveragerði svo dæmi séu tekin.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Útfyllt umsóknareyðublað og löggilt frumrit af kvittun frá meðferðaraðila

Krabbameinsskoðun

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.Greitt er fyrir skoðun allt að 3.400kr.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Útfyllt umsóknareyðublað og löggilt frumrit af kvittun frá meðferðaraðila.

Hjartavernd-áhættumat

  • Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
  • Greitt er 50% af skoðunnargjaldi.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Útfyllt umsóknareyðublað og löggilt frumrit af kvittun frá meðferðaraðila.

Sál- eða félagsleg viðtalsmeðferð

Sálfræðingar - viðtalsmeðferð

  • Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 12 síðustu mánuði.
  • Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna viðtalsmeðferðar hjá sálfræðingi.
  • Greitt er 40% af kostnaði hvers tíma allt að 25 skipti.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Úfyllt umsóknareyðublað og löggilt frumrit af dagsettri kvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala beggja aðila, tímabil meðferðar, fjöldi skipta og upphæðin sem greidd var.

Styrkir á vegum FÍS

Námskeiðastyrkur

  • Skilyrði : að greitt hafi verið af sjóðfélaga í samfellt 12 síðustu mánuði..
  • Styrkur að upphæð 40.000 þúsund.
  • Styrkur fyrir námskeið eða skóla (gildir ekki fyrir líkamsrækt eða sem íþróttastyrkur.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Frumrit kvittunar sent til Rafiðnaðarsambands merkt “styrkur Fís,, ásamt upplýsingum um banka til innborgunar.